Jæja mér gengur bara vel í skólanum get kanski náð mér upp í 9 í
einkun ef ég er dugleg. Kennarinn er búinn að vera voðalega
góður.
Vinnan gengur fyrir sig. Er að komast á morgun vakt sem ég er
bara hæst ánægð með. Þá get ég lært eftir vinnu.
Við erum örugglega ekki að fara til frakklands fyrr en í
nóvember því að það er svo mikið ódýrara. Við höfum ekki efni á
4000 dollara ferð akkúrat þessa stundina.
Garðurinn er rosa flottur fyrir utan það að eitthver stal stóru
flottu tómötunum mínum rétt áður en ég ættlaði að búa eitthvað til
úr þeim.
Ég er búin að vera fara í rætina og á laugardeginum gerði ég þó
nokkrar maga æfingar og ég er svo aum núna að ég veit ekki hvar
harðsperrurnar enda og túrverkirnir byrja.

Það var frábært að vera með Sigrúnu mína hérna hjá mér. Verst að
ég var í skólanum og að vinna á meðan hún var hérna. Hún og Gunni
náðu að tjatta svolítið og Írena fékk að leika sér heila helling
með frændum sínum.
Hér er rosa rigning og þrumur. Enda gott fyrir garðinn minn.
Jæja þá er ég búin að segja frá helstu fréttum.
Ykkar,
Ólöf Dröfn